|
|
|
Þessi síða inniheldur eldri fréttapunkta af forsíðu.
09.11.10 PreSonus Audio 1Box er væntanlegt til okkar, en þessi pakki inniheldur allt sem þarf til til að gera frábæra tónlist :).
Í þessum pakka er PreSonus Audiobox USB hljóðkort, Heyrnartól, condenser hljóðnemi, Studio One Artist upptökuforrit ásamt fjölda "virtual" hljóðfæra og "lúppa". Kíktu á myndbandið hér að ofan... Þetta er málið :)
30.04.10 Þetta er gjörsamlega vita frábært...Ég er orðlaus. Smelltu á myndina.
13.04.10 Taylor Baritone-8...Konfekt fyrir augu og eyru. Þetta er gítarinn sem fékk M.I.P.A. verðlaun á Frankfurt Musikmesse sem besti kassagítar sýningarinnar. Sjáðu meira hér, og smá bíó hér.
Taylor Guitars gefa út ársfjórðungslega "Wood&Steel", sem er blað helgað umfjöllun um þessa afbragðsgítara. Skoðaðu nýjustu útgáfu Wood&Steel (vor 2010) hér. Eldri blöð finnur þú hér.
07.01.10 "Limited Edition 2010" gítarinn frá Takamine leit dagsins ljós fyrir skömmu, en Takamine hefur sent árlega frá sér "Limited Edition" gítara við mikinn fögnuð lýðsins. Það er hressandi á nýju ári að skoða nýja gítara. Sjáðu meira hér. Uss, Cool Tube og allt...
26.09.09 Allt að gerast hjá M-Audio þessa dagana. Smelltu á myndina og sjáðu meira...
31.08.09 Pearl-europe var rétt í þessu að skjóta upp nýju og endurbættu vefsvæði, okkur öllum til gleði og ánægju. Þar sérðu allt sem þig vanhagar um og meira til... Sjáðu hér.
18.08.09 Í tilefni af því að VOX effektasending var að detta inn á gólf hjá okkur finnst okkur við hæfi að láta ykkur vita að nú er hægt að fara inn á heimasvæði VOX og hala niður fimm lögum með meistara Satriani án þess að borga sent fyrir. Bæði Satchurator og Big Bad Wah komu í þessari sendingu...
08.06.09 Vox Valvetronix VT gítarmagnararnir sem komu í nýju sendingunni hafa aldeilis verið að falla í góðan jarðveg hjá gítarleikurum. Hér er á ferðinni eðalstöff, uppfærðar útgáfur af magnaratýpum og effektum, búið að fjölga "presetum" og bönkum sem segir okkur jú, að stuðið þokist bara uppávið. Sjáðu allt um VT-línuna hér.
18.05.09 Fyrir þá sem ekki vita þá komu Road Worn gítararnir í nýju Fender sendingunni, en þetta eru einmitt gígjurnar sem hafa fengið afbragðsdóma í fagritum undanfarið. Sjáðu t.d. dóma hér, hér og hér, nú eða kíktu í verslanir Hljóðfærahússins Tónabúðarinnar og kannaðu málið...
08.05.09 Eins og alþjóð veit þá kom ný sending frá M-Audio á dögunum, öllum til ómældrar ánægju. Í sendingunni var m.a. splunkuný útgáfa (8) af Pro Tools m-powered, en óhætt er að fullyrða að aldrei hefur Pro Tools forritið verið öflugra en akkúrat í dag... Sjáðu allt um þessa nýju útgáfu hér.
11.04.09 Á ný yfirstaðinni MusikMesse hlaut Vox M.I.P.A. verðlaunin í flokkunum „Besti gítarmagnarahausinn“ og „Besti gítareffektinn“ á sýningunni. Gítarmagnarahausinn umræddi er Vox Night Train, 15 watta lampadúlla en gítareffektinn er Vox Satchurator sem er distortion pedall gerður í samstarfi við gítarsnillinginn Joe Satriani og er bjöguð snilld...
23.03.09 Í nýjasta tölublaði Sound on Sound er umfjöllun og dómur um nýjustu afurð Steinberg-manna, Cubase 5. Óhætt er að segja að græjan fær lofsamlega dóma, en meðal annars segir í niðurlagi dómsins: "Rather than simply focus on redoing the user interface, or adding only 'me too' features from competing products, Steinberg seem to have really thought about functionality that will help users get more from the application. If Sound On Sound ever has to review Cubase 5 for a third time, there will be a high standard to beat." Stuð á öllum hæðum...
03.03.09 Ovation kynntu á dögunum "2009 Collector´s edition" gítarinn, en árlega kemur frá þeim gítar í þessari seríu. Í ár skartar gripurinn m.a. KOA toppi og ebony fingurborði. Sjáðu meira hér.
16.02.09 Svona til gamans má geta þess að Ultrasone voru nýverið að tilkynna til sögunnar nýja týpu af heyrnatólum „ Edition 8“. Þessi hljóma eins og vindurinn og fjöllin allt í kring, eins og við var að búast frá Ultrasone. Sjáðu allt um Ultrasone hér.
04.02.09 TC Helicon, undirdeild TC Electronic, kynntu nýverið VoiceLive2 röddurnargræju sem uppfærða útgáfu af VoiceLive sem áður hefur komið til landsins. VoiceLive2 er í alla staði ótrúlegt verkfæri og án efa bráðsniðug hvort heldur er á svið eða í stúdíó. Sjáðu meira hér. TC Electronic kynntu m.a. nýjann bassa magnara á NAMM '09...Bass Amp 2.0 sem vakti lukku. sjáðu meira um hann hér.
27.01.09 Smá konfekt fyrir augun frá Pearl. Þetta trommusett er úr Masterworks seríunni, en myndin er tekin á ný yfirstaðinni NAMM sýningu í henni Kaliforníu.
|
|
|
|