Tónabúðin
býður gítara og fylgihluti
frá ýmsum framleiðendum.
Taylor gítarar þykja með því besta sem hægt er að
finna á hljóðfæramarkaði þessa heims, enda topp hljóðfæri
þar á ferð. Segja má að eiginleg framleiðsla á Taylor
gíturum hafi hafist 1974 og allar götur síðan hafa Taylor
gítarar verið eftirsóttir í stúdíó sem og á svið vegna
afburða hljómgæða. Fjöldi heimsfrægra tónlistar-manna sem og
minni þekktra nota Taylor gítara, sjáðu lista yfir
nokkra
hér ,
hér og líka
hér.
Saga Taylor er um margt merkileg en þú getur fræðst
meira um hana
hér.
Washburn
er með breiða línu, jafnt raf og kassagítara.
Washburn hefur framleitt gítara síðan árið
1883 þannig að vandfundnir eru þeir sem hafa
meiri reynslu.
Roger
Waters( Pink Floyd),
Scott Ian (Anthrax) og
Jennifer
Batten ( jeff Beck) eru meðal þeirra sem nota
Washburn
hljóðfæri að staðaldri.
Music
Man eru bandarískir gítarar í
mjög háum gæðaklassa. Gítarhetjan
Steve
Morse (Dixie Dregs, Deep Purple, Steve Morse Band) er einn af mörgum sem notar helst ekkert annað
en Music Man gítar.
Steve
Lukather gítarleikari Toto og
John
Petrucci
gítaristi
Dream Theater spila einnig á þessa rómuðu gítara .
Music Man var stofnað af Leo Fender 1976 en hann hafði árið
1965 selt Fender verk-smiðjuna til CBS. Ernie Ball keypti
Music Man árið 1984.
Fernandes
byrjaði að framleiða hljóðfæri í Japan 1969.
Innan nokkura ára var fyrirtækið orðið stærsti
gítarframleiðandi í landinu og í framhaldi af góðu
gengi í Asíu hófu þeir framleiðslu í bandaríkjunum
1992 með opnun Fernandes USA. Í dag er Fernandes eitt af
stóru merkjunum á markaðnum, með frábæra línu í
gíturum og bössum. Robert Trujillo (Metallica), Robert Fripp
(King Crimson), ACEY (Murderdolls) og Dave Navarro (Janes
Addiction) nota allir Fernandes hljóðfæri til að gera
lífið bærilegra.
Camps
er nýlegt merki hjá okkur - afar skemmtilegir
klassískir gítara frá Spáni, á
verði sem kemur skemmtilega á óvart. Tilvaldir
í námið - nú eða stórtónleikana!
Peavey
er stórt nafn jafnt í
gítarmögnurum
sem og í
gíturum.
Gítarhetjan Joe Satriani er einn af fjölmörgum
hljóðfæraleikurum sem notar einungis Peavey magnara og
hátalarabox. Peavey JSX magnaralínan var hönnuð í
samvinnu við Joe Satriani þykja gríðarlega skemmtileg
tæki.
Hohner
smíðar fleira en munnhörpur - td. breiða
línu af kassagíturum á ljómandi
góðu verði.
Ovation
kassagítararnir frá KAMAN eru búnir að
vera með þeim allra vinsælustu hér
síðustu árin.
Takamine
kassagítarar eru toppklassa hljóðfæri við allra hæfi. Glenn
Frey / Eagles, John
Jorgenson, Dave Navarro
/ Jane's Addiction, John Scofield og Linkin
Park eru á meðal þekktra listamanna sem nota
Takamine.
Breedlove gítarar fóru fyrst að líta dagsins ljós
1991 og allar götur síðan hafa þeir þótt með því besta sem í
boði er í kassagítar deildinni.
Parker
rafmagnsgítararnir eru ekki bara skrítnir í
laginu. Ótrúleg hljóðfæri.
Aria smíðar gítara sem þótt hafa í gegnum tíðina
slaga uppí "dýru" merkin hvað varðar gæði og endingu, enda
engir nýgræðingar þar á ferð.
Við
bjóðum strengi og fylgihluti frá
, Ernie
Ball ,
Cleartone,
DR,
Rotosound og Planet-waves.
Korg
framleiðir afbragðs gítareffekta s.s
AX3000G
og AX3G fyrir rafgítarinn, AX3000B og AX3B fyrir bassann og
AX3A fyrir acoustic
hljóðfæri.
VOX
koma sterkir inn með Tonelab ST og ToneLab LE skruggugóðar græja með innbyggðu lampabragði!.
Cooltron effekta-línan er að vaxa og stækka en hún
er einnig meðinnbyggðan lampa, en það er einmitt til að fá
þennan feita og fína tón sem þeir Vox-menn eru þekktir
fyrir.
Margar
netsíður innihalda kennsluefni fyrir upprennandi
gítarhetjur og þá sem vilja bara læra einföldustu
lögin. Kíktu á þessar síður:
|