KORG er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á hljóðfærum og tækjum tengdum tónlist.

Flaggskip þeirra Korg Oasys er í raun þrír synthar í einum, HD-1 (PCM synth), AL-1 (Virtual analog synth) og CX-1 (Toneweel organ) og er stýrikerfið byggt á Linux.

Korg M3 er afskaplega vænn kostur fyrir þá sem vilja hljómborð með frábærum sándum, snertiskjá,  og sampler svo fátt eitt sé nefnt. Sjáðu

video um þetta ofur-hljómborð hér.

Hið virta tímarit Future Music sagði: „ It´s fair to say that the M3 is a keyboard player´s dream.“

Meðal hljómborða sem komið hafa á markað frá Korg undanfarin misseri eru t.d. R3(lítill en magnaður synthi/vocoder), Radias (synthi með MMT(Multi Modeling Technology) hljóðvél, og er með innanborðs sömu "modeling" tækni og Korg Oasys) ásamt TR  synth-unum margrómuðu.

Þetta er einungis brot af breiðri línu hljómborða sem Korg bíður upp á.

 

Kíktu á Korg.com og sjáðu meira.

 

Hugbúnaðar uppfærslur, ný „sánd“ og fylgibæklinga fyrir hin ýmsu hljóðfæri frá Korg er auðvelt að nálgast beint af heimasíðu þeirra. Hér er beinn linkur á síðuna.

 

Fyrir orgelleikarann eru þeir með CX3 orgelið, sem er öllu viðráðanlegra en gamli Hammondinn með lesley boxið í eftirdragi....Og hljómurinn er sannfærandi.

 

Hljómborð með sjálfvirku undirspili - stundum kölluð skemmtarar - eru líka til frá Korg. Pa588 , Pa800, Pa500, pa50SD, að ógleymdu flaggskipinu í þessari línu Pa3x, eru frábærir kostir fyrir þá sem leita að slíku verkfæri.

 

 

Rafpíanóin LP350, SP170 og SP250 frá Korg njóta mikilla og vaxandi vinsælda - ódýr, meðfærileg og þægileg lausn fyrir heimili skóla, félagsheimili eða stofnanir.

Sjáðu yfirlit yfir borðin hér.

Korg SV-1 (Stage Vintage) hefur verið að fá verðskuldaða athygli undanfarið, snilldargræja þar á ferð.

 

Kurzweil á sér langa sögu í framleiðslu hljómborða og hefur margur snillingurinn notast við borð frá þeim. SP2X hljómborðið frá Kurzweil hlaut nýverið "Editors Coice 2008" hjá vefritinu Electronic Musician.

 

Svo erum við með statíf og stóla frá König & Meyer og Ultimate Support

 

 

 

HEIM

 

 
Hafðu samband
 

 

 
 
 
 
Korg Oasys.
 
 
Korg SV-1.
 
 
Korg Pa2Xpro.
 
 
Korg C320.
 
 
 
 
Kurzweil SP2X.