
Tónabúðin býður bassa og fylgihluti frá ýmsum framleiðendum.

Fender eiga heiðurinn af t.d. Precision bass og Jazz bass, sem eru líklega vinsælustu
bassar þessa heims...Afbragðshljóðfæri.

Þeir eru margir bassaleikararnir sem hafa einhvertímann látið sig dreyma um Music Man bassa. Stingray
bassinn þeirra er einn af "orginölunum", bassi sem margir framleiðendur hafa reynt að apa eftir.

Washburn eru með skemmtilega breiða línu. Fjögurra strengja bassar, fimma strengja, sex strengja, kassabassar - það er allt til!

Warwick bassar og magnarar eru löngu búnir að sanna ágæti sitt meðal bassaleikara þessa heims, enda afbragðs verkfæri hér á
ferð.

Fernandes bjóða glæsilega bassa sem henta við öll tækifæri.

Peavey smíðar bæði magnara og bassa. Skemmtilegar vörur.

Hohner framleiðir bæði rafbassa og kassabassa á mjög hagstæðu verði.

Aria bassar hafa kætt mann og annan í gegnum tíðina enda afbragðs gripir þar á ferð.
