
Hjá okkur finnur þú magnað úrval heyrnatóla í öllum verðflokkum.

Shure framleiða heyrnartól og heyrnartappa í verðflokkum sem henta flestum. Flestir sem eitthvað hafa komið nálægt "In-ear" mónitorkerfum þekkja vel til gæða Shure heyrnartappana en einnig hafa þeir verið að koma sterkir inn á Ipad/Ipod/Iphone markaðinn með heyrnartappa sérsniðna fyrir slíkar vörur.

Ultrasone eru meðal þeirra fremstu í framleiðslu heyrnatóla í dag, enda hafa þeir
fengið fjölmargar viðurkenningar af fagritum í gegnum tíðina.
