|
Í
Tónabúðinni er að finna gott úrval af
hljóðfæramögnurum, frá heimsþekktum framleiðendum.

ASHDOWN
bassamagnararnir hafa þótt það allra besta sem í boði er
á markaðnum
í dag, feitur og fínn botn í boði þar.
Þeir
ASHDOWN menn eru nýlega byrjaðir að bjóða lampamagnara
fyrir gítarleikara og er skemmst frá því að segja að
gagnrýnendur hafa vart haldið vatni af hrifningu yfir
gripunum.

BEHRINGER
er merki sem er alltaf að sækja í sig veðrið með betri
vörum og lægra verði. Við höfum til sölu frá þeim
skemmtilega
byrjendamagnara
ásamt vaxandi línu í
stærri
og kröftugri mögnurum.
þetta á við bæði bassa
og gítarmagnarana
frá þeim.

EDEN/NEMESIS...Án efa einn af virtustu bassamagnara
framleiðendum á jarð-kringlunni. Gæði og aftur gæði...

Frá
PEAVEY koma
margir fínir magnarar s.s
Triple XXX,
Classic
og
TransTube . Einnig er bassamagnaradeildin hjá Peavey í
góðum gír, en hún inniheldur m.a.
Tour línuna vinsælu.

Randall magnarar eru val margra heimsþekktra
tónlistarmanna, sem og minni þekktra. Meðal þekktra banda eru
Good Charlotte,
Drowning Pool,
Anthrax og
3
Doors Down, svo örfá dæmi séu nefnd.

Við
erum afskaplega ánægðir með að geta boðið viðskiptavinum
okkar hina heimsþekktu
VOX
magnara. VOX er 50 ára um þessar mundir og mikið um dýrðir í
þeirra herbúðum. Nýjar magnaralínur sjá dagsins ljós árið
2007 og eru þær
Heritage og
Custom Classic Plus. Einnig eru í boði
Custom Classic lampamagnararnir s.s. AC15
og AC30 ( ekki minni menn en Edge, Brian May (Queen) og Lenny
Kravitz hafa sést með AC30 á tónleikum, ásamt fjölda
annara, minni og jafnstórra spámanna).
Valvetronix
magnarnir eru einu orði sagt
frábærir, enda leggja þar hönd á plóginn snillingarnir
frá Korg með sína R.E.M.S tækni og (að sjálfsögðu)
starfsmenn
Vox, með sína rótgrónu þekkingu á lampa og transistor
mögnurum.
Frá
VOX koma einnig afbragðs góðir litlir gítarmagnarar og er þar
fremstur í flokki
DA5, fyrirferðalítill 5w magnari með
6,5" hátalara, innbyggðum effektum og möguleika á að keyra
hann á batteríum...tilvalinn í útileguna :).
Farðu
á Voxtalks.com
þar sem eigendur og áhugasamir „spjalla“ m.a. um þennan
ótrúlega magnara og nánast allt sem tengist tónlist.

Fender eiga langa
sögu í magnaragerð hvort heldur er fyrir rafgítara eða
bassa.
Hot Rod
línan frá þeim hefur slegið í gegn útí hinum stóra heimi og
sömu sögu má segja um
Mustang
og
G-Dec3
magnaralínurnar...
|