Við höfum upp á að bjóða mikið úrval af vörum til hljóðupptöku, hvort heldur sem er í heimahljóðverið eða í "professional" hljóðver. Rétt er að benda á forrit síðuna því þar er að sjálfsögðu margt sem notað er í nútíma-stúdíóum.

 

RME

er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu "pro" tækja, s.s. Hljóðkort, Audio-converta og formagnara, til nota í hljóðverum. FireFace 800 er öflugt hljóðkort frá þeim (tengist tölvunni með Firewire) og hefur verið að fá feyki fínar umsagnir í erlendum tímaritum, t.d segir Sound on Sound um gripinn: "At the end of the day, all I can say is that the only thing I sent back to RME after I'd finished reviewing the Fireface was my credit card number! "....Ekki slæmt það.

Sjáðu líka FireFace 400, smækkuð útgáfa af FireFace 800...

 

Shure

hljóðnemarnir eru að sjálfsögðu skyldueign í hvert hljóðver og bjóða þeir upp á mjög breiða og góða línu til þeirra nota.

 

KORG

Fyrir þá sem vilja stafræn hljóðupptökutæki þá býður korg upp á góða línu í þeim, þannig að hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þeirra minnst og ódýrast er D4 lítið og nett tæki sem fengið hefur frábæra dóma. Ef þörf er á stærra tæki er D1200mkII góður kostur. 12 rásir, átta insert effectar , hrein stafræn upptaka og möguleiki á að brenna á geisladisk er meðal þess sem þetta stórskemmtilega tæki býður upp á.

D3200 býður síðan upp á enn fleiri skemmtilega möguleika ( smelltu á linkana og skoðaðu nánar).

 

Frontier Design framleiða Tranzport, þráðlaust tæki sem er hreint ómissandi fyrir alla sem þurfa að fjarstýra upptökutölvunni úr t.d. upptökurýminu. Á skjá Tranzport sérðu nafn viðkomandi rásar og hverju þú ert að breyta...ótrúleg græja og ekki skrítið að hún hefur fengið fjölda viðurkenninga.

AlphaTrack er einnig frá Frontier Design, en AlphaTrack tengist við tölvuna með USB, skartar mótordrifnum sleða, skjá og einum 22 tökkum...

Gerir músina nánast óþarfa.

 

 

Behringer

býður upp á gott úrval af tækjum til hljóðversnota. Línan þeirra inniheldur mixera, effecta, hljóðnema, hljóðversmonitora, USB/MIDI tengda "controllera" og hljóðkort.

 

M-Audio

er með góða línu í hljóðkortum sem fengið hafa lof og prís bæði hjá notendum sem og gagnrýnendum. Stúdíómónitorar frá þeim eru á frábæru verði og ekki spillir hljómurinn (þ.e. sándið) gleðinni. Meðal hljóðkorta frá M-Audio má nefna ProFire 2626, Fast Track Ultra, Firewire 410, mobilePre USB, svona til að nefna nokkrar týpur. M-Audio framleiðir líka midi stjórnborð (midi controllers) í hinum ýmsustu stærðum og með mismunandi miklum möguleikum. M-Audio framleiða flotta stúdíómónitora sem inniheldur m.a. BX, DSM og CX  línurnar.

 

PreSonus

eru með á sínum snærum ýmsa  frábæra og um leið skemmtilega hluti s.s  Inspire, Firebox, Eureka, CentralStation, Firestudio og FP10 að ógleymdum Digimax FS sem er einn af gríðarvinsælum 8 rása mic-pre sem Presonus framleiða.

 

 

T.C Electronic

framleiða POWERCORE sem er Firewire eða PCI kort með eigin örgjörva til að keyra effekta s.s. Megaverb, Chorus/Delay og tónjafnara. Þetta kort vinnur hvort sem er í PC eða Mac vélum og gerir slappar vélar öflugar og sprækar að ofursprækum.

PowerCore FireWire  tengist eins og nafnið bendir til með Firewire við tölvuna.Powercore X8 er nýjasta og öflugasta týpan af Firewire tengdu kortunum frá T.C.Electronic. PowerCore Compact tengist einnig við tölvuna með Firewire og er eins og nafnið bendir til, góð lausn fyrir þá sem vilja hafa hafa PowerCore í fyrirferðalitlum pakka. Í PowerCore fjölskyldunni eru nú fyrir utan Powercore X8, Firewire og compact: PCI MKII, EXpress og Unplugged Í desemberblaði (2004) Sound On Sound er Powercore Compact prufukeyrður ásamt því að helstu kostir eru tíundaðir.

Gagnrýnandinn gefur tækinu feyki fína dóma og fullyrðir að bara ClassicVerb „plug-inið" eitt réttlæti kaup á PowerCore Compact (orðrétt segir hann,"Given that this is the entry-level package, it's worth the price of admission for Classicverb alone, which is still the best-sounding non-convolution reverb plug-in I've used.) PowerCore Compact inniheldur 12 stk. hágæða plugin og PowerCore Firewire 14 stk..

T.C.Electronic eru einnig framalega í framleiðslu á hljóðkortum og hefur Konnekt hljóðkortalína þeirra vakið verðskuldaða athygli úti í hinum stóra heimi sem og á landinu bláa. Konnekt línan samanstendur af Konnekt 8, Konnekt 24D (inniheldur Cubase LE upptökuforrit), Konnekt Live (inniheldur Ableton Live Lite upptöku-forrit)  og Studio Konnekt 48 sem eins og Konnekt 24D og Konnekt Live inniheldur m.a. innbyggða effekta.

 

 

framleiðir vörur sem eru nauðsynlegar fyrir hvert studíó.

 

Ómissandi í hvert stúdíó eru góð heyrnartól.

Skoðaðu blaðadóma um Ultrasone heyrnartól hér.

 

 

HEIM

 

 

Hafðu samband

 
 
 
 
 
 
FireFace400 enn eitt magnað hljóðkort frá RME..

 

 
 
 
 
D3200 gríðarmagnað upptökutæki frá Korg.
 
 
Transport frá Frontier Design...marg verðlaunuð græja.

 
 
Profire 2626 (26x26 inn/út) magnað hljóðkort frá M-Audio.  Tengist við tölvuna með firewire.
 

 

Justin Spence's Avatar

Firestudio hljóðkort frá Presonus.


 
 
 
 

 

Studio konnect 48, hljóðkort frá T.C.Electronic með

innbyggðum effektum.