|
Velkomin
á vefsvæði Tónabúðarinnar
sem er hljóðfæraverslun eins og margir vita. Þessari síðu er ætlað
að auka þjónustu við viðskiptavini okkar, með nýjustu
upplýsingum um það sem til sölu er og hvað er
væntanlegt í verslanir okkar. Tónabúðin
ehf sérhæfir sig í sölu og þjónustu á hljóðfærum, hljóðkerfum,
tónlistarhugbúnaði og hverslags tækjum og tólum fyrir hljómsveitir,
tónlistarmenn, hljóðmenn og aðra þá er koma nálægt tónlist
á einhvern hátt.
Tónabúðin hóf starfsemi sína 15. október 1966.
Verslunin
var fyrst til húsa í Gránufélags-
götu
4. Akureyri en fáum árum seinna fluttist hún að
Hafnarstræti 106. Aftur flutti hún í Gránufélagsgötu
4. nokkrum árum síðar og var þar til ársins 1982 þegar
hún fluttist í verslunarmiðstöðina
Sunnuhlíð 12 þar
sem hún hefur verið síðan.
Árið
1994 var útibú Tónabúðarinnar opnað í
Reykjavík, fyrst að Laugarvegi 163 en fluttist að
Rauðarárstíg 16 1998 (þar sem hljóðfæraverslun Poul
Bernburg var áður til húsa). 11. október 2005 flutti
Tónabúðin af Rauðarárstígnum, í
Skipholt 21.
29. september 2008 flutti Tónabúðin í Síðumúla 20 og
sameinaðist Hljóðfærahúsinu.
Upphaflega voru starfsmenn tveir, en í dag eru þeir sjö.
Tónabúðin
hefur umboð fyrir ýmis heimsþekkt vörumerki á sviði
hljóðfæra, hljóðkerfa og skyldra vara. Þessi vöru-
merki
eru meðal annars: Shure Hljóð-
nemar,
Pearl trommusett, Behringer mixerar/magnarar/effektatæki,
Korg hljómborð ofl., Peavey Hljóðfæri/
magnarar,
Washburn hljóðfæri, Steinberg
forrit
og hljóðkort,
TcElectronic forrit og tölvuíhlutir, LEM Hátalarar,
Fohhn hljóðkerfi og Paiste diskar svo fátt eitt sé nefnt.
|