Með aðstoð tölvutækninnar er það orðið ótrúlega þægilegt að taka upp og útsetja tónlist. Ýmis konar tónlistarhugbúnaður er nú í boði sem getur breytt heimilstölvunni í nokkurs konar sýndarhljóðver.
Þessi hugbúnaður skiptist í nokkra flokka eftir því hvernig hann meðhöndlar tónlist í tölvuumhverfinu.
Elsti flokkurinn eru sequenser forrit. Þessi forrit vinna með svonefnd MIDI boð, sem eru ekki hljóðmerki, heldur skipanir um hvernig hljóðgjafi (hljóðkort eða hljómborð) á að haga sér. Þannig fær hljóðgjafinn boð um hvenær nóta eða nótur eiga að byrja, hvernig þær eiga að hljóma, hve lengi þær eiga að lifa og hve sterkt.

 

 

Eitt þekktasta vörumerkið í þessum flokki er Steinberg, en þeir hafa framleitt sequensera frá því 1984. Nýjustu sequenserarnir frá Steinberg eru Cubase 6 og Cubase Artist 6, geysiöflug tæki sem vinna bæði með MIDI og hljóð.

Cubase Essential 6 er tilvalið fyrir byrjendur og aðeins lengra komna á þessu sviði.


Forrit sem vinna með tónlist á MIDI formi geta alla jafna einnig skrifað hana út á nótum.

Flaggskip Steinberg er þó tvímælalaust Nuendo, sem er hljóðvinnsluforrit í hæsta gæðaflokki. Öfugt við önnur ráðandi forrit á þeim markaði er Nuendo svokallaður “native” búnaður – þe. keyrir á þinni tölvu – þú þarft ekki að kaupa sérstakan Nuendo vélbúnað. Þetta gerir allar uppfærslur og breytingar ódýrari og einfaldari. Nuendo styður VST staðalinn og býður þar með aðgang að óteljandi VST “plug-in” efektum.

Steinberg er frumkvöðull VST (Virtual Studio Technology) tækninnar sem notuð er af atvinnumönnum um allan heim.

 

Wavelab er fulltrúi fyrir enn einn hóp tónlistarforrita, svokallaðra "wave editora" eða "bylgjubreyta". Þessi forrit eru notuð td. til að breyta hljóði eftir að það er komið inní tölvuna - deyfa eða magna hluta, skeyta tveim eða fleiri hlutum saman í einn, snúa við bútum eða jafnvel teikna eigin hljóðbylgju. Wavelab fæst jafnt fyrir Mac sem PC  vélar.

Wavelab Element er tilvalið forrit fyrir þá sem eru að færa tónlist eða talað mál af spólum eða plötum yfir í tölvur.

 

Kíktu á Cubase.net og Nuendo.com en þarna sérðu yfirlit yfir hvaða umræður eru í gangi hjá notendum forrita frá Steinberg.

 

 

 

Propellerheads - Hinir sænsku eru höfundar Reason, sem inniheldur meðal annars sampler, virtual analog syntha, trommuheila, “rexfile” player og tvo sequensera auk mixers og hellings af effektum! Reason er nú með nýjustu útgáfunni (V. 6)komið með hljóðupptöku, sem var fyrr bara í hinu magnaða forriti Record. Smelltu á linkinn og sjáðu allt um Reason 6.
 

 

 

M-Audio /Avid bjóða upp á ProTools . Nýjasta útgáfa Pro Tools er 9.0, drekkhlaðin flottum fítusum.

 

 


Ableton Live er ákaflega vinsælt meðal „ Live“ flytjenda og þykir aðgengilegt viðmót þess mjög vel heppnað. Með nýjustu útgáfu er Ableton Live orðið öflugt alhliða upptökuforrit, þar sem unnið er með hljóð- og midi-skrár jöfnum höndum.

 

 


 

 

Við bjóðum pro hljóðkort frá M-Audio , RME, Presonus og Steinberg.

 

HEIM

 

 

Hafðu samband


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nuendo, flaggskip þeirra Steinbergmanna er fullkomið upptökuforrit með áherslu á multimedia eftirvinnslu (kvikmyndir, tölvuleikir osf).

 

 

 

 

 

Wavelab er öflugt hljóðvinnsluforrit frá Steinberg.

 

 

 

 

Combinator er eitt af meðfylgjandi "tækjum"  Reason, sem gerir þér kleyft að raða saman hljóðfærum og effektum á þægilegan hátt.

 

 

Pro Tools 9.0, mögnuð útgáfa af þessu

frábæra forriti.

 

Ableton Live hefur hlotið fjölda viðurkenninga hjá

fagritum.