Við bjóðum upp á gott úrval af slagverksvörum. Ber þar helst að nefna Pearl trommusett og Paiste cymbala (málmgjöll). Pearl er stærsti framleiðandi trommusetta í heiminum í dag og skal engann undra þar sem í Pearl trommu-

settunum fer saman mjög gott verð og frábær hljómur. Margir frægir trommu-

leikarar nota Pearl trommusett s.s Dennis Chambers, Omar Hakim, Marvin Smitty Smith (trommuleikari í húsbandi Tonight Show), Jonathan Mover, Ian Paice, Chad Smith, Igor Cavalera og Vinnie Paul.

 

Tónabúðin býður einnig rafmagns-trommusett frá Hart Dynamics sem fyrir löngu hafa sannað ágæti sitt.

 

Svissneska fyrirtækið Paiste er einn helsti framleiðandi cymbala í dag og bjóða þeir upp á afskaplega breiða línu þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem menn eru að leita að "hlýjum" ride í jazzinn eða öflugum crash í rokkið.

 

Bosphorus cymbalarnir frá Tyrklandi fást einnig í Tónabúðinni. Þeir eru afskaplega mikið ...tja, persónulegir. Það eru engin 2 eintök eins, og má segja að þeir séu ágætir "contrast" á móti Paiste. Erik Qvick er einn af mörgum endorsement trommuleikurum í heiminum sem velja Bosphorus.

 

Schlagwerk Percussion framleiða slag-verkshljóðfæri s.s. Cajon, hristur og tamborínur. Cajon-in frá þeim þykja einstaklega vel smíðuð hljóðfæri og henta ákaflega vel sem "trommusett" við hátíðleg, sem og minna hátíðleg tækifæri.

Hér eru nokkur Cajon tóndæmi:

CP4005 -Cajon la Perú.

Beykiviður í framhlið

Gefur sterkan bassatón, snerilstrengir eru stillanlegir.

CP4007 -Cajon la Perú.

Með Burl Veneer í framhlið.

Þurr bassa hljómur með sterkri miðju, Snerilstrengir eru stillanlegir.

CP4011 -Cajon la Perú.

Með Zebrano í framhlið.

Með þykkum og heitum bassatón ásamt hnitmiðuðum sneriltón.

CP 404  "2inOne" - Snare Cajon.

Á einfaldan hátt er hægt að breyta þessari Cajon trommu úr "box" uppsetningu í eðal Cajon sneril trommu.

 

Tónabúðin býður upp á gott úrval af trommukjuðum og sleglum frá
Pro-Mark , Vater og Ahead.

 

 

 

 

Toca Conga og Bongo trommur eru með þeim bestu í heimi.

 

Að auki höfum við á boðstólnum ódýr trommusett frá Hohner og seljum  slagverkshljóðfæri svo sem tamborínur, hristur og annað í þeim dúr frá ýmsum aðilum.

 

 

Hardcase töskurnar eru einstaklega sterkar, léttar og meðfærilegar. Ekki spillir að þær eru á frábæru verði.

 

Íslenskir trommuleikarar nota gjarnan margir hverjir Pearl trommusett og/eða PAISTE cymbala. Ykkur til gamans (og okkur líka) er hér linkur á myndir sem teknar hafa verið af sumum þessara hljóðfæraleikara.

 

 

 

 

HEIM

 

 

Hafðu samband