Akureyrarkirkja.

 

Akureyrarkirkja var vígð í nóvember 1940 og hefur verið stolt akureyringa og nærsveitunga æ síðan.  Kirkjan er mikið notuð og vel sótt og þykir með glæsilegustu kirkjum landsins.

Arkitekt Akureyrarkirkju var Guðjón Samúelsson (1887-1950).

 

 

Hugmyndir um endurnýjun hljóðkerfis Akureyrarkirkju komu fram árið 2005, þá hafði nokkuð lengi verið kvartað undan óskýru tali og rifnum tóni. Þörf var á fleiri þráðlausum hljóðnemum og æskilegt að kirkjuvörður gæti stýrt kerfinu úr aðstöðu kirkjuvarðar í anddyri.

 

 

Við hjá Tónabúðinni höfum skoðað þessi mál nokkuð lengi, og þegar falast var eftir tilboði í nýtt hljóðkerfi á vordögum 2008 sendum við teikningar af húsinu til Fohhn í Þýskalandi þar sem málin á húsinu voru sett inn í hermiforrit og reiknað út hvernig hátalarar myndu henta best og hvaða staðsetning myndi skila bestum árangri. 

Með þau gögn og okkar miklu reynslu af uppsetningu hljóðkerfa að vopni, unnum við tilboð sem sóknarnefnd samþykkti og óskaði eftir að Tónabúðin myndi selja og setja upp nýtt hljóðkerfi í Akureyrarkirkju.  

Verkið var unnið í september 2008.

 

 

Við uppsetninguna nutum við aðstoðar rafvirkja frá Ljósgjafanum og þá sérstaklega Reynis Vatlýssonar, sem hefur séð um raflagnir í kirkjunni síðustu 30 ár eða svo. 

Þekking hans á lögnum og lagnaleiðum í kirkjunni skipti sköpum og sáu rafvirkjar Ljósgjafans um að leggja allar hátalarasnúrur og aðrar lagnir þannig að sem minnst bæri á þeim.  Tókst það verk mjög vel.

 

 

Hljóðkerfið í kirkjunni samanstendur af 12 hátölurum, 10 magnararásum, 5 þráðlausum hljóðnemum, 2 föstum hljóðnemum, hljóðblandara og DSP hljóðstýringu.  DSP hljóðstýringin sér um að deila hljóðinu í hátalarana og stilla styrk, tón og seinkun á hljóði í hvern hátalara.  Einnig er stýripanell í andyri tengdur við hljóðstýringuna sem gerir kirkjuverði kleyft að hækka og lækka í kerfinu eftir þörfum.

 

 

Hátalararnir eru frá Fohhn, úr Linea seríunni.  Þessir hátalarar eru sérhannaðir til að virka sem best í rými sem hafa langan óm-tíma, svo sem kirkjur, tónleikasalir, ráðstefnusalir.

Allir hljóðnemar og tengdur búnaður er frá Shure. Við hljóðkerfið eru tengdir fimm þráðlausir hljóðnemar, einn til að halda á eða setja á stand, og fjórir með WCE6 höfuðspöng af bestu gerð sem tryggir bestu hugsanlegu hljómgæði á tali.  

Hljóðblandari og kraftmagnarar eru frá Ecler  á Spáni. Ecler sérhæfir sig einmitt í tækjum fyrir fastsett hljóðkerfi (installation) og þykir mjög framarlega á því sviði. 

Hljóðstýringin og stýripanellinn eru frá Fohhn líkt og hátalararnir.  Með nákvæmum stillingum tókst okkur að stilla kerfið þannig að hvergi er meiri styrksmunur en 2,5dB á milli sæta, þannig að hvergi er of mikill hávaði og hvergi heyrist of lítið.

 

 

Við hljóðkerfið tengjast minni hljóðkerfi í kapellu og safnaðarheimili þannig að hægt er að hlusta á athafnir úr kirkjunni á báðum stöðum.

 

 

Hljóðkerfið hefur núna verið í notkun í nokkrar vikur og hefur reynst frábærlega.  Einfalt í notkun og hljómurinn jafn og góður.

 

 

Við óskum prestum og öðrum starfsmönnum kirkjunnar, sóknarnefnd og akureyringum öllum til hamingju með nýja hljóðkerfið í Akureyrarkirkju.

 

 

Starfsmenn Tónabúðarinnar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hafðu samband