Uppsetning í sal og

kennslustofur Giljaskóla.

 


















 

 

Uppsetning í sal Giljaskóla.

Í Giljaskóla er nýr salur, tekinn í notkun haustið 2002.  Hann er svolítið sérstakur í laginu, ekki eiginlegt svið, heldur er gólfið tekið niður í miðjunni, í nokkurs konar gryfju.  Þetta bjó til nokkur vandamál.

Það var haft samband og við vorum beðnir um lausn á málinu.

Útveguð var grunnteikning og send bæði til sérfræðinga hjá Peavey í bretlandi og til Fohhn í þýskalandi.

Það er ekki hátt til lofts í salnum og niður úr loftinu miðju, fyrir ofan gryfjuna, er slá og á hana eru hengd ljós. Ekki var talið fýsilegt að setja hátalara þar.  Bæði vegna þess að sláin var ekki hönnuð með það í huga upp á styrk og líka vegna þess að það myndi takmarka dreifingu ef hátalara væru settir þar.  Eftir talsverða ígrundun var ákveðið að mæla með hljóðkerfi frá Fohhn.  Við skoðuðum nokkra möguleika á uppsetningu og ákváðum að mæla með því að 2 hátalararar yrðu settir upp á vegg, staðsettir sitt hvoru megin við svæðið sem er notað í stað sviðs, vísandi yfir salinn, og að tveir bassahátalarar yrðu til taks þegar böll eru haldin.  Annars er hægt að rúlla þeim á bak við þegar eingöngu er verið að nota kerfið fyrir tal eða lágværa tónlist.

Hátalararnir sem fyrir valinu urðu heita Fohhn FH3i, og eru úr “Installation” línunni frá Fohhn, með 12” hátalara og 1” hátíðni einingu 350W rms.  Þeir voru pantaðir hvítir og veggfestingar í stíl.   Bassahátalararnir eru FB4-FX3, 18” hátalarar með innbyggt crossover, sem gerir það kleift að tengja þá við án frekari stillinga.

Þetta er svo knúið áfram með 2 Peavey GPS2600 kraftmögnurum og Fohhn FC-3 PRO hljóðstýring sér um að vernda hátalarana fyrir skakkaföllum.  Svo var settur Behringer tónjafnari DSP-8024 til að skera í burt óæskilegar tíðnir sem myndast í salnum.

Í stjórnherberginu er hljóðblöndunarborð er frá Behringer, MX-2004A, og í hann eru tengdir 2 geislaspilar og útvarp frá SONY og 2 þráðlaus hljóðnemasett með barmnæluhljóðnema, Shure UT24/93.  Einnig er hægt að tengja aðra hljóðnema, tölvur, myndvarpa og fleira í borðið.  Giljaskóli á einnig 2 Fohhn hátalara með innbyggðum mögnurum, Fohhn Direct media, sem eru ætlaðir í kennslustofur.  Í þá hefur verið settur móttakari fyrir þráðlausan hljóðnema og barmnæluljóðnemi og sendir fylgir þeim.  Annar þeirra hefur verið notaður sem monitor fyrir þá sem eru að stjórna hljóðkerfinu á árshátíðum og slíku, vegna þess að sakir staðsetningar stjórnherbergisins heyrist ekki vel hvað er að fara fram í salnum.  En með þessu móti er mjög þægilegt að fylgjast með.

Hljóðkerfið hefur reynst alveg ótrúlega vel.  Hljómur alveg til fyrirmyndar og það er mjög einfalt í notkun.

Uppsetning í skólastofur í Giljaskóla.

Haft var samband við okkur varðandi talkerfi fyrir kennara í skólastofur í Giljaskóla.   Tónabúðin hefur nú þegar sett upp tugi slíkra kerfa í grunnskólunum hér á svæðinu.  Eftir að farið var yfir málin með skólastjóra var ákveðið að setja upp 2 hljóðkerfi í skólastofur þar sem kennarar höfðu kvartað yfir vandamálum tendum raddbeitingu, og að skólunn mundi einnig fá 2 færanleg kerfi sem hægt væri að nota bæði í skólastofum og einnig á sal, eða úti í porti.  

Að fenginni reynslu ákváðum við að setja upp Peavey hljóðkerfi í skólastofurnar.  Hátalararnir heita Impulse 6 og eru festir upp með SV-605 vegg/loftfestingu.  Mixer/magnarinn heitir MP400 og er með 4 rásir og 65w magnar innbyggðan.  

Við erum búnir að prófa ótal samsetningar á slíkum hljóðkerfum, og þessi samsetning er sú sem hefur komið langsamlega best út.

Við þetta er svo tengt þráðlaust hljóðnemasett frá Shure, T3 móttakari og T1 sendir, og hljóðnemi í barm.  Við höfum reyndar haft það fyrir reglu að þegar við setjum upp svona kerfi þá prófum við allavega 3 gerði af hljóðnemum, og veljum síðan það sem hentar best í hvert tilfelli.  Þar sem mixermagnarinn hefur 3 lausar rásir er einnig hægt að stinga í hljóðkerfið geislaspilara, kasettutæki, myndvarpa, tölvu eða hverju sem er og nýta hljóðkerfið til að varpa hljóði yfir stofuna í mun meiri gæðum en lítið ferðatæki gerir eða hátalarar í sjónvarpi.

Í færanlegu kerfin völdum við Fohhn Direct Media hátalara með magnara innbyggðan.  Hann er með 8” hátalara og tweeter og magnarinn er 100w rms.  Lítill mixer er aftan á hátalaranum og hægt er að tengja hljóðnema og eitthver tæki (geislaspilara, hljómborð eða merki frá mixer) saman inn á hátalarann í einu og stilla styrkinn sitt í hvoru lagi.  Við ákváðum að gera lífið örlítið einfaldara fyrir notandann og komum þráðlausa móttakaranum fyrir inn í hátalaranum, þannig að það þarf aðeins að hengja á sig sendinn, staðsetja hljóðnemanann, setja hátalarann á stand og stinga honum í samband við rafmagn og  -tataaa!  Komið hljóð.  Þessa hátalara er líka hægt að nota ef halda þarf ræður eða flytja tónlist úti, einnig sem monitora fyrir tæknimann á skólaskemmtunum og álíka viðburðum inn í sal ofl.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hafðu samband