Verkmenntaskólinn á Akureyri.

Í verkmentnntaskólanum á Akureyri hefur löngum verið fjörlegt tónlistar og listalíf. Þar hefur staðið til lengi að endurbæta hljóðkerfið í “Gryfjunni”.

Tónabúðin bauð lausn með hljóðkerfi frá Fohhn sem gefur mikla möguleika og getur dugað hvaða uppákomu sem er í salnum. 

Hljóðkerfið samanstendur af 4 stk. 18” botnum, 2 stk.  2x12+2” toppum við svið, 2 stk. x 12”+2” delay hátölurum aftar í salinn og 2 stk. 10”+1,4” hátalara í hliðargang.  Hljóðkerfið er keyrt með Peavey CS mögnurum og stýrt af  Peavey Digitool DSP stýringu og með Fohhn FC7pro controllerum fyrir hátalarana.  Lítill mixer er í tækjaskáp á sviði sem býður upp á notkun á kerfinu án þess að vera með mixer út í sal, t.d. fyrir ræður, kynningar eða til að spila tónlist með CD spilara, úr útvarpi eða annað.

Hljóðkerfið er samtals 6,600w. Kerfið hefur verið notað við tónleika ýmissa hljómsveita, á söngkeppni VMA ofl. ofl. með frábærum árangri.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hafðu samband